Stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna

Fimmtudaginn 02. nóvember 1995, kl. 15:30:49 (666)

1995-11-02 15:30:49# 120. lþ. 25.3 fundur 61. mál: #A stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna# þál., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur


[15:30]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Það er enginn að fara fram á það að dagskránni sé stjórnað héðan en öll umræða þar sem vakin er á því athygli að þarna sé hallað á annað kynið er auðvitað af því góða eins og kom reyndar fram í máli hæstv. ráðherra. Ég held að umræðan hér ætti strax að hafa þessi áhrif og öll umræða sem vekur athygli á því misrétti sem viðgengst er auðvitað af hinu góða og ætti að hafa áhrif.