[18:31]
Guðrún Helgadóttir:
Hæstv. forseti. Þar sem ég virðist vera eini hv. þm. sem greiddi atkvæði gegn þessu frv. tel ég mér skylt að gera grein fyrir ástæðunni. Ég tel að þetta mál sé allt hið sorglegasta eins og ég hef marglýst yfir. Hér var um að ræða leiðréttingu á úr sér gengnum ákvæðum laga um þingfararkaup. Ég tel og verð að segja alveg eins og er að málið hafi verið illa kynnt og þjóðin hafi misskilið allt eðli þessa máls. Ég held að mér þyki þessi umræða öll, þessi afgreiðsla mála Alþingi til vansa og er á móti þessu frv. frá byrjun til enda og treysti mér ekki til þess að fylgja flokki mínum í því efni. Ég tel að engin ástæða hafi verið til þess að breyta þeim lögum sem þegar voru sett og mér þykir mjög miður að þjóðin skuli hafa verið afvegaleidd með misvísandi upplýsingum um efni þessa máls. Mér þykir þingmenn leggjast lágt við að hlaupa eftir upphlaupum þeirra sem hvorki vildu né gátu skilið eðli málsins og ég tel að hið háa Alþingi eigi ekki að vinna á þessa lund og harma þetta mál allt saman.