Þingfararkaup og þingfararkostnaður

Fimmtudaginn 02. nóvember 1995, kl. 18:33:20 (695)

1995-11-02 18:33:20# 120. lþ. 26.1 fundur 84. mál: #A þingfararkaup og þingfararkostnaður# (skattskylda starfskostnaðar) frv., ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur


[18:33]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Hér er verið að samþykkja að skattleggja sérstakan starfskostnað alþingismanna. Við þingmenn Þjóðvaka styðjum það. Hins vegar var felld tillaga okkur um að afnema 16. gr. laganna. Það gilda því áfram sérstök skattalög fyrir alþingismenn. Að mati okkar þingmanna Þjóðvaka er óhæfa að sérstök skattalög skuli gilda um alþingismenn. Við hörmum þessa niðurstöðu og munum sitja hjá við lokaafgreiðslu málsins.