[15:06]
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin svo langt sem þau ná. Ég varð satt best að segja ekki miklu nær um hver hin eiginlega staða málsins er. Ég spurði hæstv. ráðherra um það í lokin hvort hann gæti staðfest það hér að sá tími sem til stefnu væri væru þær vikur sem eftir lifa þessa árs og það kæmi ekki til greina að láta þetta mál vera enn í óvissu þegar gengið verður endanlega frá fjárlögum í desember. Það held ég að sé mikilvægur vendipunktur í málinu og mér hefði þótt betra ef hæstv. ráðherra hefði getað staðfest að þetta mikilvæga mál yrði ekki látið standa í óvissu um komandi áramót. Það er ekki bara einhver formskylda til að uppfylla fyrirvara í lögum sem Alþingi setti inn sl. vor. Ég held að öllum sé ljóst að það er mikilvægt málaflokksins vegna til þess að þetta geti gengið vel og að ekki verði um þetta nein óvissa. Ég held að það sé nauðsynlegt að menn átti sig á því hvaða tími er til stefnu og menn geri þá úrslitatilraun til að ljúka vinnunni núna á næstu vikum þannig að hlutirnir liggi fyrir í desember áður en fjárlög verða afgreidd eða taki ella ákvörðun þá um að fresta málinu a.m.k. um eitt ár.