Úthlutunarreglur Lánasjóðs ísl. námsmanna

Mánudaginn 06. nóvember 1995, kl. 15:32:53 (720)

1995-11-06 15:32:53# 120. lþ. 27.1 fundur 66#B úthlutunarreglur Lánasjóðs ísl. námsmanna# (óundirbúin fsp.), BH
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur


[15:32]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Ég þakka svör ráðherrans þó að það hafi kannski litlu verið svarað. Ég er að reyna að koma því á framfæri að það hlýtur að vera svo að stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna þurfi að fara að landslögum og þar sem þetta er meginmarkmið laga um húsaleigubætur skyldi maður ætla að þetta meginmarkmið væri haft í huga við framkvæmd laganna um Lánasjóð ísl. námsmanna.

Annars hefði verið tækifæri til að gera fyrirvara um það í lögunum um húsaleigubætur að þau ættu að gilda um alla landsmenn nema námsmenn sem mér sýnist að hljóti að verða niðurstaðan af þessu svari ráðherrans.