Óþörf fjárfesting í húsnæðiskerfinu

Mánudaginn 06. nóvember 1995, kl. 15:37:00 (723)

1995-11-06 15:37:00# 120. lþ. 27.1 fundur 67#B óþörf fjárfesting í húsnæðiskerfinu# (óundirbúin fsp.), VÁ
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur


[15:37]

Vilhjálmur Ingi Árnason:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. svör hans. Mér sýnist hann hafa fullan skilning á hvernig annars ágætt húsnæðiskerfi hefur verið misnotað, hvernig íbúðir hafa verið byggðar miðað við þarfir verktaka en ekki fólksins sem á að búa í þeim. Það er alvörumál því það erum við landsmenn allir sem komum til með að borga brúsann.