Bjargráðasjóður

Þriðjudaginn 07. nóvember 1995, kl. 14:56:15 (760)

1995-11-07 14:56:15# 120. lþ. 29.12 fundur 125. mál: #A Bjargráðasjóður# (heildarlög) frv., ÁMM
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur


[14:56]

Árni M. Mathiesen:

Herra forseti. Fyrir nokkrum árum varð ég var við það vegna þess að leitað var aðstoðar minnar sem dýralæknis að hugmyndir voru uppi um breytingar á Bjargráðasjóði og að færa hluta af starfsemi Bjargráðasjóðs og þá væntanlega þess hluta búnaðardeildarinnar sem um ræðir til tryggingafélaganna á hinum almenna markaði. Leyfi ég mér að skilja það svo að með þessu frv. séu aflagðar allar slíkar hugmyndir.