[15:37]
Ágúst Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Mikið er ég hissa. Mér er alltaf að verða ljósara að hv. þm. Ögmundur Jónasson er íhaldsmaður. Það þarf ekkert að vera slæmt í sjálfu sér, en hann er varðhundur kerfisins. (GHelg: Þingmaðurinn ætti að þekkja einkennin.) Þingmaðurinn hefur rætt við þennan þingmann áður eins og hann gat um. Ég dró fram í ræðu minni marga þætti sem ég veit að fleiri þingmenn eru í sjálfu sér sammála um að þurfi að stokka upp. en hér kom hv. þm. strax í kjölfarið og hann vill engu breyta. Hann vill hafa kerfið óbreytt. Hann er afsprengi þessa kerfis og það er í sjálfu sér ágætt að hv. þm. kjósi þennan vettvang til að upplýsa þjóðina um íhaldssemi sína varðandi kerfið sem er komið af fótum fram.