[14:02]
Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):
Herra forseti. Bara af tilefni ummæla hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur varðandi verðtryggingu lána og til upplýsingar þá hefur það verið ákveðið í samvinnu viðskrn. og Seðlabankans og fyrstu skref hafa verið tekin í þá veru að afnema verðtrygginguna í áföngum og gert er ráð fyrir því að afnám verðtryggingar verði að fullu komið til framkvæmda um aldamót, þannig að menn nota tímann fram til aldamóta til þess að afnema verðtrygginguna.
En til þess að svar til hv. fyrirspyrjanda sé alveg skýrt og ekki fari þar neitt milli mála þá hyggst ráðuneytið í tilefni af þeirri fyrirspurn sem hér hefur verið borin fram vekja athygli bankaeftirlitsins á umræddu málefni.