[11:01]
Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. 8. þm. Reykv. beindi nokkrum orðum til fjárlaganefndarmanna varðandi vinnubrögð fjárln., ríkisreikning og framkvæmd fjárlaga. Ég vil upplýsa að það hefur verið lögð í það nokkur vinna í fjárln., þó alltaf megi deila um hvað er nóg í þeim efnum og hvað ekki, að fylgjast með framkvæmd fjárlaga með aðstoð Ríkisendurskoðunar og fjalla um skýrslu Ríkisendurskoðunar um þau efni. Einnig hefur verið lögð nokkur vinna í það, m.a. nú nýverið, að fara í gegnum ríkisreikning. Eins og kunnugt er, er uppsetning ríkisreiknings 1994 nokkuð breytt. Það hefur verið lögð ærin vinna í það og við höfum fengið inn í nefndina sérfræðinga frá fjmrn., Ríkisendurskoðun og ríkisreikninganefnd svokallaðri til að fara yfir nýjar hugmyndir um uppsetningu ríkisreiknings og fjárlaga sem er mikil nauðsyn á að breyta og færa til nútímahorfs.
Ríkisreikningur árið 1991 er til meðferðar í fjárln. og við höfum lagt í það nokkra vinnu að fara yfir það mál enn einu sinni. Þeirri vinnu er ekki lokið og ég vil ekkert um það segja fyrr en álit nefndarinnar liggur fyrir. Ég tel það ekki tímabært þar sem málið er til meðferðar í nefndinni.