Ríkisreikningur 1994

Fimmtudaginn 16. nóvember 1995, kl. 12:00:05 (892)

1995-11-16 12:00:05# 120. lþ. 33.6 fundur 129. mál: #A ríkisreikningur 1994# frv., PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 33. fundur


[12:00]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. segir að Sjálfstfl. sé ábyrgðarlaus. Þetta er að sjálfsögðu sleggjudómur. Ég veit að innan þingflokks Sjálfstfl. er þegar í gangi umræða um það hvernig eigi að bregðast við þessu nýja álveri og hvernig eigi að nota það til þess að minnka halla ríkissjóðs. Það er því er ekki þannig að menn ætli að fara að eyða þessu. Ég er ekki að tala eingöngu við þingflokk Sjálfstfl., ég er að tala við þingmenn almennt, að þeir taki á hinum stóra sínum og noti þau tækifæri þegar meiri tekjur koma í ríkissjóð og meiri fjárfesting inn í landið til þess að minnka halla ríkissjóðs.