[12:48]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi vil ég segja frá því að ríkisstjórnin hefur ekki enn rætt endanlega við sveitarfélögin um samskipti ríkis og sveitarfélaga. Það hefur farið fram eitt viðtal en ætlunin var að ræða sameiginleg málefni innan tíðar.
Í öðru lagi er það rétt sem kom fram hjá hv. þm. að það dregur úr möguleikum fyrirtækjanna að fjárfesta eða greiða hærri laun ef skattarnir hækka á fyrirtækjum. Hins vegar vil ég láta koma mjög skýrt fram að skattar á fyrirtæki, sérstaklega skattar eins og þessir sem við erum að tala um, eru lægri hér en víðast annars staðar. Til dæmis er greitt talsvert miklu hærra í ýmiss konar tryggingagjöld á Norðurlöndunum sem er þá flatur skattur á launaliði eins og hér er verið að tala um og það stundum svo mikið að til vandræða horfir eins og í Finnlandi.
Hv. þm. spyrst fyrir um hvort til greina hafi komið að samræma hlutfallið. Það kom auðvitað til greina. Reyndar hefur verið amast við því að hafa þessi tvö hlutföll af hálfu ESA en ákveðið var að fara ekki fram með það mál að sinni hvað sem síðar verður.
Varðandi það hvort eigi að skattleggja beinlínis lítil og stór fyrirtæki með misjöfnum hætti sé ég ekki rök til þess. En ég tek undir með hv. þm. að það er hins vegar nauðsynlegt að skoða mjög vandlega hvort við getum örvað það að stofnað sé til atvinnustarfsemi.
Einnig vil ég segja að við höfum lagt okkur í framkróka um það að koma í veg fyrir skattsvik og mér finnst einnig koma til greina að breyta skattalögum ekki síst með tilliti til þess sem kom fram í máli hennar en það er að fyrirtækin muni t.d. í sumum tilvikum leigja húseignir sínar til viðkomandi starfsmanna. En að allra síðustu vil ég að það komi fram að þessi breyting sem hér á sér stað er ekki flókin og gerð af neinum flumbrugangi. Þessi breyting er mjög einföld, eins einföld og breyting getur orðið.