Drífa Sigfúsdóttir fyrir HjÁ

Föstudaginn 17. nóvember 1995, kl. 10:32:50 (949)

1995-11-17 10:32:50# 120. lþ. 34.91 fundur 78#B x#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur


[10:32]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur eftirfarandi bréf:

,,Þar sem Hjálmar Árnason, 7. þm. Reykn., er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Reykn., Drífa Jóna Sigfúsdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Formaður þingflokks Framsfl.,

Valgerður Sverrisdóttir.``

Kjörbréf Drífu Sigfúsdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.