[12:46]
Jón Baldvin Hannibalsson (andsvar):
Herra forseti. Ég veit að hv. þm. ætlast ekki til þess sjálfur að fá svör við þessari spurningu. Það gerist ekki með því að nefna honum hlutföll eða tölur hér úr ræðustól.
Ákvörðun veiðileyfagjaldsins er mál sem ég geri ráð fyrir að verði með þeim hætti að menn vilji fara hóflega af stað, menn vilji jafnvel þreifa sig áfram og reyna fyrir sér um gjaldtökuna. Hv. þm. veit að við jafnaðarmenn störfum samkvæmt lögmálinu um óhjákvæmileik hægfara breytinga. Við erum reiðubúnir til þess að sætta okkur við málamiðlanir til þess að ná langtímamarkmiðum. Við knúðum hæstv. sjútvrh. í fyrrv. ríkisstjórn til að fallast á þróunargjald í Þróunarsjóðnum sem var, eins og hæstv. ráðherra sagði málamiðlun og meira að segja ekkert sérstaklega góð málamiðlun, en fyrsta skrefið engu að síður. Við skulum því byrja smátt, en mjór er mikils vísir.