[15:25]
Flm. (Guðmundur Árni Stefánsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir ræðu hv. þm. því hann var öllu skýrari í framsetningu hvað þetta varðar en í fyrri ræðu sinni. Ég held að hann sé sammála mér að nóg hafi verið hannað og teiknað og nægum fjármunum hafi verið veitt til þess arna. Ég minni líka á að hv. þm. kom beint að þessu máli, að vísu ekki í núverandi starfi sínu sem þingmaður heldur sem þáverandi bæjarstjóri í Njarðvíkurbæ og er auðvitað öllum hnútum kunnugur. Ég get því ekki leynt því að ég undrast dálítið að hann hefði allt í einu einhverjar efasemdir um ágæti þessarar framkvæmdar og hvernig að henni væri staðið því að hann kom gjörla að henni á þeim tíma sem frá málum var gengið.
Virðulegi forseti. Það er alveg hægt að velta þessu fram og til baka. Menn hafa 15 daga til stefnu til þess að finna fjármuni til þess að allar þær framkvæmdir, sem hér um ræðir, geti gengið fram með þeim hætti sem framkvæmdarvaldið hefur lofað í þeim samningum sem það hefur gert við samningsaðila. Það er auðvitað hið stóra verkefni ríkisstjórnarflokkanna að búa þannig um hnúta að þannig geti mál gengið fram.
Af því að ég er að ræða dagsetningar minni ég á að í margnefndum samningi um svokallaða D-álmu eru einmitt dagsetningar sem miða við 15. nóvember ef ég man rétt þar sem fullnaðarhönnun ætti að vera lokið. Menn eru því nákvæmlega á þeim tímapunkti að láta einfaldlega auglýsa útboð og fara í það að moka, grafa, steypa og byggja. Það er mergurinn málsins.