Heimsókn grænlenskra þingmanna

Mánudaginn 20. nóvember 1995, kl. 15:01:08 (1083)

1995-11-20 15:01:08# 120. lþ. 35.98 fundur 94#B heimsókn grænlenskra þingmanna#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur


[15:01]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess að sendinefnd frá grænlenska landsþinginu undir forustu forseta þess, Knuds Sørensens, fylgist með upphafi þessa fundar. Sendinefndin er í heimsókn til þess að kynna sér starfshætti Alþingis en nú er unnið að endurskoðun þingskapa og starfshátta grænlenska landsþingsins.

Fyrir hönd Alþingis býð ég sendinefndina velkomna og vona að för hennar verði árangursrík.