Samningar ríkisvaldsins um stofnframkvæmdir og viðhald heilbrigðisstofnana

Mánudaginn 20. nóvember 1995, kl. 15:30:22 (1099)

1995-11-20 15:30:22# 120. lþ. 36.3 fundur 140. mál: #A samningar ríkisvaldsins um stofnframkvæmdir og viðhald heilbrigðisstofnana# þál., KHG (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur


[15:30]

Kristinn H. Gunnarsson:

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins árétta þá athugasemd sem ég gerði í umræðunni um þetta mál. Ég tel rétt að það fari til fjárln. Hér er eingöngu um að ræða fjárlaganefndarmál. Þeir samningar sem tillagan fjallar um og lagt er til að þingið staðfesti varða allir framkvæmdir og ríkisútgjöld. Ég get því ekki séð að málið eigi betur heima í annarri nefnd en hv. fjárln.

Hitt kann að vera eðlilegt, ef mönnum sýnist svo, að fjárln. leiti umsagnar heilbr.- og trn. um þetta mál.