Starfsemi og fjárreiður stjórnmálasamtaka

Þriðjudaginn 21. nóvember 1995, kl. 18:06:51 (1168)

1995-11-21 18:06:51# 120. lþ. 38.8 fundur 158. mál: #A starfsemi og fjárreiður stjórnmálaflokka# frv., KH
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur


[18:06]

Kristín Halldórsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég tek undir undrun og hneykslun hv. síðasta ræðumanns. Ég get alveg sagt það hér og nú að mér finnst koma vel til greina að hafna algjörlega þátttöku í svona starfi. Það var hins vegar mat okkar að á það skyldi reyna hvort hugur fylgdi máli og við munum að sjálfsögðu fylgjast með þessu og kanna hvort ástæða er til þess að taka þátt í starfi sem virðist ekki eiga að fara fram af meiri alvöru en kemur fram í þessu sem hv. síðasti ræðumaður var að segja.