Jöfnun atkvæðisréttar

Mánudaginn 27. nóvember 1995, kl. 19:06:10 (1339)

1995-11-27 19:06:10# 120. lþ. 41.9 fundur 188. mál: #A jöfnun atkvæðisréttar# þál., KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur


[19:06]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að þingmaðurinn hafi misskilið hvað ég átti við. Ég var ekki að tala um það að auka vægi atkvæða Vestfirðinga á Alþingi. Ég var að tala um að minnka vægi Alþingis og auka vægi vettvangs heima í héraði til að ráða málum.