Mengun af brennisteinssamböndum

Miðvikudaginn 29. nóvember 1995, kl. 14:01:38 (1421)

1995-11-29 14:01:38# 120. lþ. 43.0 fundur Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur


[14:01]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Vegna umræðna sem hér urðu áðan út af ræðutíma þingmanna og ráðherra, þá vill forseti láta þess getið að samkvæmt 49. gr. þingskapa er þingmönnum heimilt að gera einu sinni stutta athugasemd eina mínútu hverjum þegar fyrirspurn er á dagskrá, en þetta á greinilega ekki við þann þingmann sem ber upp fyrirspurnina og heldur ekki við ráðherrann sem svarar þannig að þessi athugasemd var hárrétt og biðst ég velvirðingar á þessum mistökum og vænti þess að þetta skapi ekki fordæmi.