Framleiðsla og sala á búvörum

Miðvikudaginn 29. nóvember 1995, kl. 20:46:45 (1488)

1995-11-29 20:46:45# 120. lþ. 45.1 fundur 96. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (sauðfjárframleiðsla) frv., Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur


[20:46]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Ætlun forseta var að gera stutt hlé á fundinum um kvöldmatarleytið að beiðni nokkurra þingmanna. Af því hléi getur ekki orðið af augljósum ástæðum. Það eru nú 10 á mælendaskrá. Eins og forseti gat um í upphafi umræðunnar var samkomulag milli forseta og þingflokksformanna um að halda áfram fundi til miðnættis. Það samkomulag byggðist auðvitað á því að þingmenn yrðu stuttorðir en það samkomulag verður að sjálfsögðu að endurmeta á fundi með þingflokksformönnum nú á eftir.