Framleiðsla og sala á búvörum

Fimmtudaginn 30. nóvember 1995, kl. 11:51:47 (1529)

1995-11-30 11:51:47# 120. lþ. 46.5 fundur 96. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (sauðfjárframleiðsla) frv., HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur


[11:51]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Um þetta er ekki svo sem mikið að segja. Það veit enginn hvað framhjásölukjötið er mikið. Bændur hafa líka heimtökurétt, en hitt er það að mörgum bóndanum sárnar það mjög, löghlýðnum manninum sem hefur farið af fremsta megni eftir fyrirmælum og lögum að njóta þess svo ekki í markaðshlutdeildinni, sérstaklega næstu tvö árin. En svo kemur að því að verð og framleiðsla eru gefin frjáls og þá förum við að ná enn meiri árangri.