Launakjör í utanríkisþjónustunni

Mánudaginn 04. desember 1995, kl. 15:20:39 (1556)

1995-12-04 15:20:39# 120. lþ. 50.1 fundur 115#B launakjör í utanríkisþjónustunni# (óundirbúin fsp.), MÁ
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur


[15:20]

Mörður Árnason:

Herra forseti. Nú er ég ekki að krefjast þess eða aðrir hér að ráðherra hafi upplýsingar á takteinum. Mér kemur hins vegar á óvart að hæstv. fjmrh. skuli svara þessu svo að hann vísar í raun og veru frá sér ábyrgð yfir á utanrrh. En ég tel vel koma til greina þó að mín viðvera verði stutt að sinni að koma þessu máli í skriflega fyrirspurn þannig að úr því verði greitt fyrir alþingismenn alla og þjóðina.