Framleiðsla og sala á búvörum

Þriðjudaginn 05. desember 1995, kl. 13:50:33 (1592)

1995-12-05 13:50:33# 120. lþ. 52.5 fundur 96. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (sauðfjárframleiðsla) frv., MÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur


[13:50]

Mörður Árnason:

Herra forseti. Hér á að lögfesta sérstaka heimild ráðherra til útflutningsskipulags. Þetta er sovéskt kerfi, austantjaldsaðferðafræði fyrri tíma og það er við hæfi að Sjálfstfl., sem stundum kennir sig við frjáls viðskipti, skuli bera þetta fram. Þetta er fáheyrt. Ég segi nei.