Framleiðsla og sala á búvörum

Þriðjudaginn 05. desember 1995, kl. 15:41:00 (1608)

1995-12-05 15:41:00# 120. lþ. 53.3 fundur 96. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (sauðfjárframleiðsla) frv., MÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur


[15:41]

Mörður Árnason:

Herra forseti. Sá samningur sem við erum nú að samþykkja er vondur fyrir neytendur, vondur fyrir bændur en verstur fyrir framtíðina. Þjóðvaki hefur lagst gegn þessum samningi, komið með uppbyggilegar breytingartillögur við hann í samvinnu við aðra í stjórnarandstöðunni. Þær hafa ekki verið virtar viðlits. Ég segi nei.