Framleiðsla og sala á búvörum

Þriðjudaginn 05. desember 1995, kl. 15:47:32 (1614)

1995-12-05 15:47:32# 120. lþ. 53.3 fundur 96. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (sauðfjárframleiðsla) frv., RA (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur


[15:47]

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Skoðun mín á þessum samningi hefur ekki breyst frá því sem var við atkvæðagreiðslu við 2. umr. Ég tel að samningurinn sé gallaður og ófullnægjandi í flestum greinum og greiði því ekki atkvæði.