[14:56]
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég sagði ekkert um það hvort embætti forseta Íslands hefði tiltekið pólitískt vald eða ekki. Hins vegar setti ég fram það sjónarmið að reynsla af núv. fyrirkomulagi hefur verið góð. Reynslan rökstyður ekki tillöguflutning um breytingu. Í öðru lagi væri embætti forseta Íslands ekki svo veigamikið að það réttlætti þennan auka kostnað og auknu fyrirhöfn vegna tveggja umferða. Þessi tillaga sem hér liggur fyrir er ekki tillaga um að breyta embættinu. Hún er bara tillaga um að breyta kosningu til þess. Í sjálfu sér er ég ekkert að fjalla um það hvaða skoðun ég eða aðrir kunna að hafa á hlutverki forseta Íslands. Það er allt annað mál og ekki hér til umræðu.