Veiting ríkisborgararéttar

Fimmtudaginn 07. desember 1995, kl. 10:37:30 (1662)

1995-12-07 10:37:30# 120. lþ. 56.1 fundur 155. mál: #A veiting ríkisborgararéttar# (fyrra stjfrv.) frv., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur


[10:37]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd allshn. fyrir brtt. á þskj. 287 við frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Þeir aðilar sem mælt er með á þessu þskj. uppfylla þær verklagsreglur sem allshn. hefur farið eftir við veitingu ríkisborgararéttar og er nefndin öll sammála flutningi brtt.