[11:30]
Svanfríður Jónasdóttir:
Virðulegi forseti. Ég bið um fyrst og fremst um orðið til að ræða störf hins háa Alþingis vegna þess að fyrir liggur frv. til breytinga á tekjustofnun sveitarfélaga. Það hefur líklega verið tvo sólarhringa á borðum okkar þingmanna. Í dag er 7. des. og frv. á að taka gildi í byrjun næsta mánaðar.
Undanfarna daga og reyndar síðast í gær hefur Alþingi haft til meðferðar fjáraukalög fyrir árin 1994 og 1995. Í nefndarálitum með þeim kom fram að hv. þm. þykir sem áætlanir þær sem hér eru gerðar séu ekki nógu góðar. Þeim hljóti að vera í ýmsu ábótavant, svo miklu skeikar hvað varðar annars vegar áætlanir og hins vegar þær niðurstöður sem menn horfa framan í.
Virðulegi forseti. Vinnubrögð af þessu tagi eru allt of algeng. Lagabreytingar eru gerðar á síðastu stundu og eiga að koma til framkvæmda með svo stuttum fyrirvara að sá sem á að framkvæma hefur vart ráðrúm til þess að kynna sér ný lög né heldur að finna þeim eðlilegan stað innan þeirra áætlana sem hann kann að vera að gera.
Nú háttar þannig til að sveitarfélögin í landinu eru að vinna að fjárhagsáætlunum sínum. Sum þeirra er langt komin með fjárhagsáætlanir sínar og samkvæmt lögum um sveitarfélög eiga þau að vera búin að afgreiða þær fyrir lok janúar. Löggjafinn gerir strangar kröfur til áætlanagerðar sveitarfélaganna. Þau þurfa líka að hafa afgreitt reikninga sína fyrir tiltekinn tíma og þá verður að senda til félagsmálaráðuneytisins til staðfestingar.
Það eru ólíðandi vinnubrögð að koma með frv. inn í þingið örfáum dögum fyrir þinglok þegar annir eru hvað mestar, frv. þar sem lagðar eru til veigamiklar breytingar á lögunum um tekjustofna sveitarfélaga. Ég er ekki með þessu að áfellast sérstaklega þann hæstv. félmrh. sem mælir fyrir frv. né heldur að tala um þetta af því að þetta sé einstakt né heldur vegna þess að ég hafi efnislega eitthvað á móti innihaldi frv. Það er bara svo að vinnubrögð af þessu tagi verða að fara að heyra sögunni til. Ef við ætlum að gera betur, eins og mér finnst að bæði forseti þingsins og aðrir hv. þm. hafi fullan vilja til, þarf auðvitað undirbúningur að breytingum sem þessum að hafa lengri tíma. Málin þurfa að hafa betri tíma til umfjöllunar í þinginu, í nefndum og svo ég tali ekki um að þeir sem við eiga að búa, og eftir eiga að vinna, hafi betra ráðrúm til að finna þessum breyttu lögum stað innan þeirra áætlana sem verið er að vinna. Eins og ég gat um áðan eru sveitarfélögin í landinu að vinna að fjárhagsáætlunum sínum en hér segir að lög þessi eigi að öðlast gildi 1. jan. 1996.