Skýrsla um útbreiðslu fíkniefna og þróun ofbeldis

Föstudaginn 08. desember 1995, kl. 10:55:08 (1732)

1995-12-08 10:55:08# 120. lþ. 58.91 fundur 130#B skýrsla um útbreiðslu fíkniefna og þróun ofbeldis# (aths. um störf þingsins), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur


[10:55]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Sá tími sem er til umráða fyrir þessa umræðu er liðinn. Forseti vill geta þess í lokin og ítreka að á fundi forsætisnefndar og formanna þingflokka fyrr í þessari viku var ákveðið að umræða færi fram í þinginu í næstu viku um fíkniefnavandann. Sú umræða fer fram eftir nánari ákvörðun og í samráði við formenn þingflokka. Um þetta varð full samstaða á þessum fundi þingflokksformanna og forsætisnefndar.