[10:57]
Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti vill aðeins ítreka áður en gengið er til dagskrár að þessi umræða mun fara fram hér og það hefur engin ákvörðun verið tekin af hálfu forsrh. um að skila ekki þessari umbeðnu skýrslu. Á það leggur forseti áherslu. Hann mun kalla saman fund með formönnum þingflokka til þess að ákveða þetta allt nánar.