Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Föstudaginn 08. desember 1995, kl. 18:18:24 (1792)

1995-12-08 18:18:24# 120. lþ. 58.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur


[18:18]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Steingrímur Sigfússon sagði að hér hefði ekki verið talað um útgjaldaauka og hér mætti ekki tala um fjárlagafrv. almennt. Það hefur verið spurt út úr um fjárlagafrv. og fjárlagafrv. hefur jafnhliða verið til umræðu. Það getur svo sem vel verið að útgjaldaaukinn hafi ekki verið nema 29 milljarðar. Það getur vel verið að það skeiki einum milljarði, en það er ekki mikið meira en það.