Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Föstudaginn 08. desember 1995, kl. 19:55:07 (1818)

1995-12-08 19:55:07# 120. lþ. 58.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur


[19:55]

Svavar Gestsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar upplýsingar og ég skora þá á hv. formann heilbr.- og trn. að láta ekki þessa hluti bíða stundinni lengur og boða tafarlaust til fundar í heilbr.- og trn. til að knýja fram úrslit í þessu máli.