[16:15]
Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Það hefur komið ein fyrirspurn til mín í þessum umræðum frá hv. þm. Guðnýju Guðbjörnsdóttur. Í þeirri tillögu að mótun fjölskyldustefnu sem ég mun leggja fyrir Alþingi er að sjálfsögðu tekið á fíkniefna- og vímuefnavanda, það er einn af áherslupunktunum og það mun að sjálfsögðu heyra til fjölskyldu- og jafnréttisráði að fylgjast með því máli.