Fjárlög 1996

Fimmtudaginn 14. desember 1995, kl. 20:41:54 (1942)

1995-12-14 20:41:54# 120. lþ. 65.5 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur


[20:41]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Eins og fram kemur í þriðja lið þessa erindis er lagt til að 150 millj. kr. verði settar á sérstaka liði í fjmrn. til ráðstöfunar á næsta ári til að kosta hagræðingarátak í rekstri ríkisstofnana almennt. Þetta er ekki eingöngu í rekstri sjúkrahúsa. Ég vil taka fram að þetta er eftir orðanna hljóðan í rekstri ríkisstofnana. Vafalaust fá sjúkrahúsin sinn hlut af þessari upphæð en það er ekki ljóst enn þá hvað mikið það verður.