Iðnlánasjóður

Föstudaginn 15. desember 1995, kl. 16:49:19 (2022)

1995-12-15 16:49:19# 120. lþ. 66.4 fundur 194. mál: #A Iðnlánasjóður# (tryggingalánadeild) frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur


[16:49]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það hafi gætt örlítils misskilnings í máli hv. þm. Eigið fé Iðnlánasjóðs er ekki neikvætt. Eigið fé Iðnlánasjóðs er upp á 2,5 milljarða. Hins vegar hefur þessi deild, verkábyrgðatryggingadeildin í Iðnlánasjóði, verið rekin með tapi þannig að eigið fé hennar er neikvætt. Ráðstafanir hafa nú verið gerðar til að tryggja að hún standi undir sér til framtíðar. Eins og kemur fram í nefndaráliti hv. iðnn. hefur stjórn sjóðsins verið skrifað bréf þar sem það á að vera tryggt að þessi deild standi undir þeim skuldbindingum sem hún tekur að sér þegar til framtíðar er litið.