Viðaukasamningur um álbræðslu við Straumsvík

Laugardaginn 16. desember 1995, kl. 16:31:46 (2069)

1995-12-16 16:31:46# 120. lþ. 68.1 fundur 171. mál: #A viðaukasamningur um álbræðslu við Straumsvík# frv., Frsm. meiri hluta StG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur


[16:31]

Frsm. meiri hluta iðnn. (Stefán Guðmundsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og kom fram í máli mínu í morgun í upphafi umræðunnar hefur iðnn. farið mjög ítarlega yfir þetta mál og lagt mjög mikla vinnu í það og reynt að fá svör við öllu því sem um hefur verið spurt. Ég get sagt vegna þeirra fyrirspurna sem komu fram frá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni að ég vonast til þess að geta aflað þeirra upplýsinga sem hér var beðið um fyrir 3. umr. málsins.