[17:22]
Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Margt væri þess virði að ræða nánar við hæstv. umhvrh. en í örstuttu andsvari vil ég aðeins nefna tvo eða þrjá þætti. Það þá fyrst að í sambandi við mengunarmörk þar sem ráðherrann er enn að leggjast á sömu sveif og honum er rétt í hendurnar varðandi Noreg og viðmiðunarmörk þar og staðfesti nú enn það sem ég var að láta liggja að í ræðu minni, hvað menn væru iðnir við þann kola að draga í efa að það séu einhver raunsæ mörk hjá Norðmönnum að gera kröfu um 0,4 kg/tonn í útblæstri í losun flúors. Ég hvet hæstv. ráðherra til að banka upp á hjá þeim í Statens forurenings tilsyn næst þegar hann á leið til Óslóar og láta leiða sig í allan sannleika um stefnu norskra stjórnvalda í þessum efnum. Þetta er ekki bara spurningin um eldri álver, það er ekki verið að setja þau undir, þennan rekstur sem verið hefur. En það er þó markmið að ná líka eldri álverum undir þessi mörk og allar viðbætur líka í eldri álverum því að menn skulu varast að teygja þann lopa svo að segja: Við erum hér með einn eða tvo kerskála, svo koma tveir eða þrír í viðbót og þá sé það bara eldra álver. Þetta er röksemdafærsla sem gengur ekki upp. Við hana geri ég mjög alvarlegar athugasemdir og þessa eilífu tortryggni á það hvaða mörk séu sett í Noregi.
Varðandi svo CO2 og kolakynt orkuver. Til hvers er verið að vísa í þeim efnum? Það er þetta varahjól í sambandi við CO2 sem ég kallaði svo. Halda menn að menn séu hér í samkeppni við kolakynt orkuver í sambandi við álbræðslur hér eða annað þess háttar? Þetta eru bara undaskot að mínu mati sem eiga sér enga stoð í þeim veruleika sem við erum að fjalla um. Ég geri athugasemdir við þetta og fleira sem ég þyrfti að víkja að en sleppi núna tímans vegna.