Bifreiðakaupalán til öryrkja

Mánudaginn 18. desember 1995, kl. 15:10:44 (2094)

1995-12-18 15:10:44# 120. lþ. 69.91 fundur 145#B bifreiðakaupalán til öryrkja# (aths. um störf þingsins), SvG
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur


[15:10]

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Vandinn í þessu máli er auðvitað sá að það skortir greinilega aðeins traustari aðbúnað málsins. Þess vegna er óhjákvæmilegt, þrátt fyrir yfirlýsingar hæstv. heilbrrh. eða kannski einmitt vegna yfirlýsinga hennar, að flytja frv. og gera það að lögum í þessari stofnun. Ég geri ekki ráð fyrir að mönnum sé neitt að vanbúnaði með það að afgreiða frv. til þess að skjóta lagastoðum undir afstöðu heilbr.- og trmrh. í þessu efni. Ég tel að hún ætti fremur að þakka fyrir það heldur en amast við því að stjórnarandstaðan komi til liðs við hana í þessum krappa dansi sem hún stígur núna við íhaldið í ríkisstjórninni.