[15:40]
Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Eins og fram hefur komið hjá þeim hv. þm. sem nú hafa talað, eru bæði góðar og slæmar hliðar á samningi þessum. Það er ljóst að hann hefur í för með sér fjölgun atvinnutækifæra á suðvesturhorni landsins, til skemmri og lengri tíma. Á þessu svæði býr stór hluti atvinnulausra á landinu og ástandið í atvinnumálum er þar hvað alvarlegast.
Þótt ekki sé um að ræða framkvæmd sem skiptir sköpum í atvinnu landsmanna þá skiptir hún verulegu máli. Þá liggur það ljóst fyrir að samningurinn hefur jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf og afkomu Landsvirkjunar. Ég tel þessi rök vega mjög þungt í málinu og mun fyrst og fremst með tilliti til þessara þátta styðja málið. Ég segi því já.