Tekjuskattur og eignarskattur

Mánudaginn 18. desember 1995, kl. 15:52:04 (2113)

1995-12-18 15:52:04# 120. lþ. 69.2 fundur 147. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (fjárhæðir, sérstakur tekjuskattur, frádráttur lífeyrisþega o.fl.) frv., SJS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur


[15:52]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Við þingmenn Alþb. höfum ítrekað á undanförnum árum gagnrýnt of mikil jaðaráhrif í skattkerfinu og þar á meðal lagt til þak á jaðarskatt. Hér er gengið eitt örstutt skref í þá átt að draga úr óhóflegri tekjutengdri skerðingu barnabótaauka, þó að okkar mati sé allt of skammt gengið. En við styðjum þessa breytingu sem spor í rétta átt í trausti þess að það ekki látið staðar numið hér heldur haldið áfram og farið í gagngera endurskoðun á tekjutengingu í skattkerfinu almennt.