[16:30]
Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
Herra forseti. Það hefur nú margoft komið fram við þessa umræðu að umhverfisþáttur samningsins var löngu frágenginn þegar umræðan hófst á Alþingi. Frá þeim þætti hefur verið gengið samkvæmt íslenskum lögum og reglum. Hv. þm. átti þátt í að setja þau lög á Alþingi, lögin um umhverfismat. Af þeim þætti stafar engin hætta. Aðrir þættir sem eru til umfjöllunar hafa fengið rækilega umræðu í þinginu. Þingheimur hefur sannfærst og sæst um skattamálin og orkumálin, að öðru leyti en því að einn þingmaður hefur ekki getað sætt sig við niðurstöðuna sem þar fékkst. Allir aðrir þingmenn sem hér hafa mælt og talað fyrir þessum samningi hafa bent á að þessir þættir, orkumálin og skattamálin, séu í mjög góðu lagi. Framtíðin ein mun hins vegar skera úr um hvernig samningurinn reynist þjóðinni. Fyrstu vísbendingar um þá framtíð erum við að fá í Þjóðhagsspá fyrir árið 1996 þar sem segir að hagvöxtur muni aukast, framleiðsluverðmætin í þjóðfélaginu munu aukast og draga muni úr atvinnuleysi. Að því erum við auðvitað að stefna, hv. þm.