Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Miðvikudaginn 20. desember 1995, kl. 14:46:26 (2223)

1995-12-20 14:46:26# 120. lþ. 73.3 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., SvG (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur


[14:46]

Svavar Gestsson (um fundarstjórn):

Ég þakka hæstv. forseta fyrir liðlegheitin og vildi kannski bæta því við að mér skilst að hæstv. samgrh. sé kominn til bæjarins eins og aðrir þm. sem fóru vestur á firði í dag tiltekinna opinberra erinda. Ég skora því á hæstv. forseta að gera ráðstafanir til þess að hæstv. samgrh. verði leiddur hér í salinn. Gríðarlega stór hluti af þessum málum snertir samgrn. þar sem verið er að skera hrottalega niður framlög til samgöngumála. Auðvitað verður hann að svara fyrir sig í þeim efnum, hann einn getur það.