[23:02]
Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Kristín Ástgeirsdóttir beindi til mín fyrirspurnum varðandi afstöðu mína til Kvikmyndasjóðs og húsafriðunarsjóðs og þeirra breytinga sem gerðar eru í þessu frv. varðandi fjárveitingar og við hvað skuli miðað. Ég held að um formbreytingar sé að ræða en ekki efnisbreytingar. Ég mun beita mér fyrir því á meðan ég gegni mínu starfi að þessir sjóðir verði efldir eftir því sem kostur er því ég tel að þessar aðferðir sem þarna er verið að ræða um taki mið af þeim raunveruleika sem við stöndum frammi fyrir og höfum staðið frammi fyrir á Alþingi um langt árabil. Stigið er skref í þá átt að breyta forminu en ekki efninu. Það verður áfram eins og það er nú undir okkur alþingismönnum komið að lokum að ákveða hve háar þessar fjárveitingar verða. Ég lít á það sem eðlilegt markmið að standa vel að kvikmyndagerð með Kvikmyndasjóði og einnig að húsafriðun með húsafriðunarsjóði og tel að þær breytingar sem við erum að gera með þessu frv. dragi ekki úr líkum á því að reynt verði að gera það.