Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 10:43:53 (2286)

1995-12-21 10:43:53# 120. lþ. 74.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur


[10:43]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Ég harma þá niðurstöðu að brtt. minni hlutans sem áðan voru greidd atkvæði um var felld. Hins vegar horfir þessi brtt. meiri hlutans, sem hér eru greidd atkvæði um, til bóta. Þessu máli er ekki þar með lokið. Við munum beita okkur fyrir því að gerðar verði breytingar á þessum lögum og þau færð í upprunalegt form. Ég segi já.