Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 10:57:29 (2291)

1995-12-21 10:57:29# 120. lþ. 74.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur


[10:57]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Hér er verið að gera breytingu á viðmiðun atvinnuleysisbóta og er nú skírskotað til launa, verðlags og efnahagsþróunar. Ég geng út frá því að þessi breyting muni ekki hafa í för með sér neina skerðingu frá fyrra fyrirkomulagi og í trausti þess segi ég já.