[14:36]
Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég heyri að það þjónar litlum tilgangi að deila um röksemdir fram og til baka í þessu máli í stuttum andsvörum við hv. þm. sem hefur lokað öllum skilningarvitum fyrir því að hér geti verið um rök að ræða í þessu máli. Ég ætla að tefla einum rökum fram til viðbótar þeim fjölmörgu sem ég hef þegar teflt fram.
Ef lífeyrisþegar hefðu vitað það í upphafi árs 1995 að vaxtatekjur þeirra ættu að skerða lífeyrinn á árinu 1996 og þeir hefðu átt peninga á venjulegum bankabókum hefði þá ekki verið skynsamlegt fyrir lífeyrisþegana að taka þetta allt út af bankabókum og setja í skuldabréf hjá ríkissjóði sem telur ekki vexti fyrr en lífeyrisþegarnir taka þetta út? Hér er komið aftan að fólki. Hv. þm. Vilhjálmur Egilsson hefur iðulega hátt í ræðustól þegar hann álítur að komið sé aftan að fyrirtækjum eða stóreignafólki. Núna teflir hann öllum gagnrökunum fram gegn þeim hópi sem heita lífeyrisþegar.
Virðulegi forseti. Mér finnst þetta ekki stórmannlegt og mér er nær eftir þessa umræðu að ítreka kröfu mína að umræða fari fram í efh.- og viðskn. um þetta mál. Ég læt það í hendur efh.- og viðskiptanefndarmanna, sem hér hafa setið og hlýtt á umræðuna, hvort ekki sé full ástæða til þess að nefndin óski eftir því við formann efh.- og viðskn. að málið sé tekið upp af nefndinni áður en umboðsmaður Alþingis fer að reka málið inn í þingið af því að málið hefur ekki verið skoðað eðlilega af nefnd þingsins sem á að fjalla um þetta.
Ég ítreka spurningu mína til ráðherrans sem ég hef borið fram til hans.