Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 15:23:49 (2361)

1995-12-21 15:23:49# 120. lþ. 76.3 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur


[15:23]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þm. Vilhjálmi Egilssyni að honum tókst með framferði sínu fyrr í dag að skapa ákveðinn óróa. Nú hefur hann séð að sér og hann hefur lægt þennan óróa. Hann hefur orðið við sanngjörnum óskum okkar alþýðuflokksmanna um að taka þessar tvær greinar út úr frv. Ég vil að lokum segja það, hæstv. forseti, að þó að hv. þm. Vilhjálmur Egilsson hafi ekki útlit jólasveinsins þá sýnir þetta að hann hefur a.m.k. innræti hans.