[17:46]
Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Jón Baldvin Hannibalsson) (um fundarstjórn):
Virðulegi forseti. Þótt hv. þm., formaður efh.- og viðskn., sé þegar ekinn út úr þessum göngum með brosi á vör, vil ég í allri vinsemd segja eftirfarandi. Hvernig halda hv. þm. að því yrði tekið ef svo háttaði til að þingflokkar Sjálfstfl. og Framsfl. væru í stjórnarandstöðu og hér væri verið að leggja fram mál af þessu tagi sem hefði enga efnislega umfjöllun fengið í þingflokkum þeirra við 3. umr. lánsfjárlaga? Hvers vegna hefði hún enga efnislega umfjöllun fengið? Einfaldlega vegna þess að málið var sett á dagskrá við fulltrúa þessara flokka, þ.e. núverandi stjórnarandstöðuflokka, með tölulegri áætlun um einn milljarð í gærkvöldi. Það er upplýst að við vikum af fundi áður en stjórnarmeirihlutinn hafði komið sér niður á niðurstöður. En áður en við fórum af fundi gátum við allt eins haldið að þar yrði niðurstaðan 300 millj. eins og hv. flutningsmaður, Einar Oddur Kristjánsson, telur nægilegt, eða einhver önnur.
Með öðrum orðum, við erum að óska eftir því og við erum að tala um málsmeðferð að efh.- og viðskn. í heild komi saman til þess einfaldlega að fá svör við spurningum og fá upplýsingar í málinu sem liggja ekki fyrir og að þingflokkar stjórnarandstöðuflokkanna fái að þeirri umfjöllun lokinni ráðrúm til þess að ræða málið efnislega á grundvelli staðreynda vegna þess að ég hygg að allir séu sammála um það að mál af þessu tagi verða ekki leyst í ræðustól á Alþingi, hvort heldur er undir venjulegum umræðum eða í umræðum um fundarstjórn forseta. Ég verð að beina því til forseta í allri vinsemd að þetta séu lágmarksóskir ef menn hafa áhuga á því að málið fái málefnalega umfjöllun.