Fjáraukalög 1995

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 20:57:26 (2411)

1995-12-21 20:57:26# 120. lþ. 76.5 fundur 44. mál: #A fjáraukalög 1995# frv., Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur


[20:57]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég mun vissulega gera grein fyrir þessu máli þegar ég flyt framsöguræðu fyrir frv. til fjárlaga á eftir og þá í heild sinni. En það er rétt að samkomulag sem formaður og varaformaður fjárln. unnu í samráði við fjmrn. og heilbrrn. um þetta mál gerði ráð fyrir að rekstrarmál þessara stofnana yrðu tekin til sérstakrar meðferðar. Ég ætla ekki að gera því ítarleg skil í andsvari en ég mun gera grein fyrir þeim málum nánar í framsöguræðu við fjárlagafrv. sjálft. Þar er fjallað um framtíðina í þessum efnum þótt vissulega sé fjáraukalagafrv. liður í aðgerðum sem fyrirhugaðar eru þarna suður frá.